Það var rokkað af svölum skólans fyrir margmenni á hausthátíðinni sem foreldrafélagið efndi til í bongó-blíðu síðastliðinn þriðjudag. Skólastarf er rétt hafið og því var tónlistarfólk skólans ekki búið að æfa í mánuði en tvær hljómsveitir létu það ekki á sig fá og stigu á stokk af miklum myndugleik. Tónleikarnir hófust með hljómsveitinni Þrumukettirnir, en hana skipa þær Hrafntinna Mía Stefánsdóttir, gítarleikari, Katrín Marta Káradóttir trommuleikari, Móeiður Jóhannesdóttir bassaleikari, Pénélope Saga Cattaneo, gítarleikari og Melkorka Þórey Árnadóttir söng eitt lag með þeim stöllum en hinar skipta líka með sér söng. Stúlkurnar koma úr 7. bekk enda voru áheyrendur í sjöunda himni með rokkið sem hljómaði nánast um allt hverfið.

Því næst steig á svið, eða öllu heldur svalir, tónlistarfólk úr unglingadeild sem hefur verið afar iðið við tónleikahald við skólann. Þá súpergrúppu skipa Guðmundur Gunnarsson hljómborðsleikari, Karen Dís Káradóttir, gítarleikari og söngkona, Markús Egill Charles Wright bassaleikari, Marín Yngvadóttir trommuleikari, Víkingur Hrafn Steinarsson, gítarleikari og söngvari og þar létu söngvararnir  Adrían Evan Viktorsson og Nana Ofosu Larbie heldur ekki sitt eftir liggja og sungu sitt lagið hvor.

Bæði spilamennskan og lagaval lagðist vel í fólksfjöldann sem var á öllum aldri enda gæða rokk og popp þarna á ferð allt frá Michael Jackson til Radiohead. Lokalagið skar sig þó nokkuð úr enda var það frumsamið lag eftir Víking. Heyra má lagasmíðina á helstu streymisveitum en það heitir Beinlaus banani, og kemur öllum í stuð.

Nokkur bítlabragur var á tónleikunum sem minntu á þegar Bítlarnir sungu sinn svanasöng á þaki byggingar í Lundúnum fyrir rúmri hálfri öld. Annars ber líka að minnast, en okkar tónlistarfólk fetaði þarna í fótspor hinna víðfrægu Væb-bræðra sem einnig hafa sungið þessu sömu svölum. Þetta eru sem sagt nokkuð „svalir“ nemendur.