Skólaráð

Skólinn

Samráðsvettvangur um skólahald

Skólaráð grunnskóla er samstarfsvettvangur starfsfólks skóla, nemenda, foreldra og grenndarsamfélags. Ráðið er kosið til tveggja ára í senn.

Skólastjóri boðar til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári og sendir út fundaáætlun skólaársins. Hann boðar til funda, sendir drög að umræðuefnum og stýrir fundum. Aðstoðarskólastjóri ritar fundargerð og sér til þess að þær birtist á vef skólans.

Helstu verkefni skólaráðs

  • Umfjallanir um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið.
  • Umsagnir um áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skólans áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin.
  • Að fylgjast með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda.

Skólaráð Skarðshlíðarskóla 2025–2026

Hlutverk Netfang
Ingibjörg Magnúsdóttir Skólastjóri ingibjorg@skardshlidarskoli.is
Margrét Lilja Pálsdóttir Aðstoðarskólastjóri margret@skardshlidarskoli.is
Hildur Arna Hakanson Fulltrúi kennara
Ragna Jenný Friðriksdóttir Fulltrúi kennara
Valgerður Ósk Hjaltadóttir Fulltrúi almennra starfsmanna
Hilmir Rafn Emilsson Fulltrúi foreldra
Dagbjört Harðardóttir Fulltrúi foreldra
Fulltrúi foreldrafélagsins
Kristbjörg Eva Arnarsdóttir Fulltrúi nemenda
Víkingur Hrafn Steinarsson Fulltrúi nemenda
Fjóla Sigrún SIgurðardóttir Fulltrúi tómstundarmiðstöðvar

Fundargerðir

Veturinn 2026 - 2027