Á vorönn hafa nemendur í 7. bekk unnið að verkefni sem kallast Snillistund (e. Genius Hour). Nemendur í 6. bekk unnu sambærilegt verkefni fyrir áramót sem tókst afar vel. Í Snillistund fá nemendur tækifæri til að hafa áhrif á eigið nám, velja sér viðfangsefni út frá áhugasviði og dýpka þekkingu sína þannig að þau verði sannkallaðir sérfræðingar á sínu sviði. Nemendur hafa unnið af miklum metnaði að verkefnum sínum. Verkefnin eru einstaklingsverkefni, þó að sumir nemendur hafi valið svipuð viðfangsefni og unnið saman í verkefnavinnunni. Fyrirmælin voru einföld: Nemendur áttu að velja sér viðfangsefni, kynna sér það vel og miðla síðan upplýsingunum á þann hátt sem þau kusu sjálf. Auk þess áttu þau að skila af sér einhvers konar afurð sem tengdist verkefninu á einhvern hátt. Núna í lok apríl var haldin sýning á verkefnum nemenda þar sem foreldrum gafst kostur á að koma og skoða afrakstur vinnunnar. Sýningin vakti mikla lukku og voru nemendur afar stolt af verkefnum sínum. Deila Tísta