Foreldrar nemenda og starfsfólk í Skarðshlíðarskóla hafa verið dugleg að færa skólasafninu bækur að gjöf í vetur. Bæði höfum við fengið bækur á íslensku sem foreldrum finnst áhugaverðar eða eru hættar í notkun og leita að nýjum notendum en einnig fjölmargar bækur á öðrum tungumálum sem fólk kaupir á ferðum sínum erlendis og færir safninu.

Sendum við þeim bestu þakkir fyrir að aðstoða okkur við að byggja upp flott og fjölbreytt bókasafn sem mætir þörfum og áhuga allra nemenda skólans.