Nemendur í 3. bekk tóku þátt í hugmyndasamkeppni Evolytes – fjölskyldan mín Í ár bárust fleiri tillögur en nokkru sinni áður og voru tíu bestu hugmyndirnar verðlaunaðar við skemmtilega athöfn fyrir helgi. Við segjum stolt frá því að Aron Valle, nemandi við Skarðshlíðarskóla, átti eina af þessum topp tíu hugmyndum. Við óskum honum innilega til hamingju. Evolytes er námskerfi sem kennir börnum 5-11 ára stærðfræði með skemmtilegum og árangursríkum hætti. Kerfið sameinar námsleik, námsbók og upplýsingakerfi til þess að bæta námsárangur barna. Deila Tísta