Skarðshlíðarskóli
Skólasetning í Skarðshlíðarskóla verður þriðjudaginn 25. ágúst.
  • 2. – 4. bekkur – 8:30 – 09:00
  • 5. – 7. bekkur – 09:00 – 09:30
  • 8. – 10. bekkur – 09:30 – 10:00
Nemendur mæta í matsal nemenda. Skólastjóri heldur ávarp og setur skólann. Umsjónarkennarar lesa upp nöfn sinna nemenda og fylgja þeim í heimastofur.
Dagana 25. og 26. ágúst eru samtalsdagar hjá umsjónarkennurum í 1. bekk fyrir nemendur og forráðamenn. Umsjónarkennarar hafa samband við forráðamenn varðandi tímasetningar.
Skarðssel er lokað mánudaginn 24. ágúst og þriðjudaginn 25. ágúst.