Nemendur í 3. bekk hafa nýverið tekið þátt í skapandi og skemmtilegu verkefni tengdu stærðfræðiefninu Evolytes. Um er að ræða seinni hluta Þjóðarverkefnisins í stærðfræði, þar sem nemendur fá tækifæri til að hanna sína eigin „Evolytes fjölskyldu“ og leggja þannig sitt af mörkum til ævintýraheimsins.

Verkefnið reynir bæði á sköpunargleði og ritunarfærni og vakti mikla gleði og áhuga meðal nemenda. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu fjölbreyttar og skemmtilegar útfærslurnar voru.

Hver veit nema hugmyndir nemenda í Skarðshlíðarskóla verði í námsefni Evolytes á næstunni.