Í þessari viku byrjuðum við í 1. bekk á þemaverkefninu Komdu og skoðaðu umhverfið. Í byrjun verkefnisins erum við að kynnast betur skólanum okkar bæði að innan og utan. Við nýttum góða veðrið í dag og fórum út að skoða skólalóðina betur. Nemendurnir skiptu sér niður í hópa og fóru út að telja ýmislegt sem er úti eins og ljósastaura, rólur, mörk o.fl. Eftir að við komum inn fórum við að skoða niðurstöðurnar betur og allir settu tölurnar inn í súlurit. Við munum svo halda áfram að vinna í þemaverkefninu á næstunni. Deila Tísta