Skólareglur Mikilvægt er að nemendur hafi ekki einungis skyldur gagnvart náminu sínu heldur líka framkomu sinni og hegðun í skóla.Nemendur bera ábyrgð á framkomu sinni og samskiptum með hliðsjón af aldri og þroska. Nemendum ber að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks grunnskóla í öllu því sem skólann varðar, fara eftir skólareglum og fylgja almennum umgengnireglum í samskiptum við starfsfólk og skólasystkin. Skólareglur Fara vel með eigur okkar og annarra. Fylgja athyglismerki. Leiða hjá sér óæskilega hegðun. Nota innirödd. Hjálpa öðrum Tilbúin að vera við hliðina á hverjum sem er. Vera vinaleg. Fara eftir fyrirmælum. Hafa hendur og fætur hjá sér. Hafa síma og snjalltæki í tösku eða heima. Mæta á réttum tíma. Við skiljum gos, orkudrykki, sælgæti og vopn eftir heima. Við skiljum hjóla- og línuskauta og leikföng eftir heima. Notkun vopna, tóbaks, áfengis, og vímuefna, rafrettna, þjófnaður, skemmdarverk, ofbeldi og svindl er þriðja stigs brot. Reglutafla Skarðshlíðarskóla Agaferli Skarðshlíðarskóla Símar og snjalltæki Slökkt á að vera á síma eða á hljóðlausri stillingu á skólatíma og þeir geymdir í skólatösku. Það má nota snjalltæki í verkefnavinnu ef kennari gefur leyfi. Þá er mikilvægt að slökkt sé á tilkynningum frá samfélagsmiðla-öppum. Upptökur í kennslustundum eru með öllu óheimilar á einkasíma eða snjalltæki nemenda. Foreldrar eru beðnir um að hringja á skrifstofu skólans ef þeir þurfa að ná í barn sitt á skólatíma. Spjaldtölvur Kennarinn stýrir kennslustund og ákveður hvenær spjaldtölvan er notuð. Spjaldið er námstæki. Nemendur eiga að mæta með spjaldið fullhlaðið á hverjum morgni. Það á að ganga vel um spjaldið og hafa það í hulstrinu. Það má ekki taka myndir eða myndbönd nema með leyfi. Nemandi mætir í tíma með spjaldið lokað. Þegar spjaldið er ekki í notkun er það geymt lokað í horni borðsins eða ofan í tösku. Spjaldið á að vera á hljóðlausri stillingu í kennslustundum og nota skal heyrnartól við hlustun. Tilkynningar eiga að vera á hljóðlausri stillingu. Umgengnisreglur fyrir spjaldtölvur Farartæki Hjól og línuskautar Foreldrar geta leyft börnum sínum að koma á þessum fararskjótum í skólann meti þeir aðstæður öruggar hverju sinni. Nemendur í 1. bekk þurfa þó að vera í fylgd fullorðins. Notkun hjóla, hlaupahjóla, hjólabretta, línu- og hjólaskauta er ekki leyfð á skólalóðinni á skólatíma. Það er ekki er aðstaða til að geyma hlaupahjól og hjólabretti inni. Það má ekki fara á þeim í íþrótta- og sundtíma. Til þess er skólabíllinn. Það er nauðsynlegt að vera með hjálm. Vespur Nemendur mega koma á vespum í skólann en ekki vera á þeim á skólatíma. Fylgja þarf lögum og reglum og gæta varúðar. Það má ekki fara á þeim í íþrótta- og sundtíma. Til þess er skólabíllinn. Það er nauðsynlegt að vera með hjálm. Reglur um hjól, hlaupahjól og bifhjól