Farsæld barna Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi þann 1. janúar 2022. Meginmarkmið laganna er að skapa umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Öll börn undir 18 ára aldri, og fjölskyldur þeirra, eiga að hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf er á. Hlutverk tengiliðar er: að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á Þegar barn er við nám í leik-, grunn-, eða framhaldsskóla er tengiliður þjónustu í þágu farsældar barns starfsmaður skólans þar sem barnið er við nám eða leik. Farsæld barna Kynningarmyndband : Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna Tengiliður farsældar Hörn Ragnarsdóttir - Skólafélagsráðgjafi og tengiliður farsældar hornr@skardshlidarskoli.is Brúin Í skólanum er sérstakt brúarteymi þar sem unnið er í sameiningu til að auka farsæld barna og fjölskyldna þeirra. Í teyminu situr fagfólk á vegum skólans, ásamt ráðgjöfum frá fjölskyldu- og barnamálasviði og mennta- og lýðheilsusvið. Brúarteymið kortleggur stöðu barnsins og leitar sameiginlegra lausna til að styðja við barnið og fjölskyldu. Brúin Nemendaverndarráð Hlutverk nemendaverndarráðs er að taka við öllum erindum, bæði frá starfsfólki og foreldrum, um stuðningsþjónustu skólans og koma þeim í farveg sem leiðir til lausna á þeim. Foreldrar sem telja að barn þeirra þurfi á stuðningi að halda geta haft samband við umsjónarkennara barns eða deildarstjóra sérkennslu, Lindu Dröfn Sigurðardóttir. Foreldrum er alltaf tilkynnt ef málum barna þeirra er vísað til ráðsins. Ráðið heldur fundi vikulega. Í ráðinu sitja: Skólastjórnandi Námsráðgjafi Hjúkrunarfræðingur Sálfræðingur Deildarstjórar Umsjónarkennarar og aðrir eru boðaðir til fundar eftir þörfum. Ráðið er bundið þagnarskyldu um einkamál nemenda, að undanskildum atvikum sem ber að tilkynna samkvæmt lögum. Reglugerð um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga Reglugerð um nemendur með sérþarfir Heilsugæsla Skólahjúkrunarfræðingur: María Hjaltadóttir skardshlidarskoli@heilsugaeslan.is Viðverutími Þriðjudaga 08:00-15:00 Miðvikudaga 08:00–12:00 Föstudaga 08:00–12:00 Heilsuvernd skólabarna í Skarðshlíðarskóla er á vegum Heilsugæslunnar í Firði. Heilsuverndin er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi. Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Helstu áherslur í heilsuvernd nemenda eru: Fræðsla, forvarnir og heilsuefling Bólusetningar Skimanir Viðtöl um heilsu og líðan Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu og Embættis landlæknis um heilsuvernd grunnskólabarna. Sjá nánar á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Heilbrigðisfræðsla Skipulögð heilbrigðisfræðsla er veitt í öllum árgöngum og er áherslan á að hvetja til heilbrigðra lífshátta. Eftir fræðslu fá foreldrar upplýsingar í tölvupósti um fræðsluna og gefst þá kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu og hvernig hægt er að nýta það í daglegu lífi. Markmið hverrar fræðslu eftir árgöngum er hægt að sjá á Heilsuveru. 1. bekkur „Líkaminn minn“ – forvörn gegn kynferðislegu ofbeldi og hjálmanotkun. 2. bekkur Tilfinningar. 3. bekkur Verkefnabók um 6H heilsunnar (Hamingja, Hollusta, Hreinlæti, Hreyfing, Hvíld). 4. bekkur Kvíði og slysavarnir. 5. bekkur Samskipti. 6. bekkur Kynþroski og endurlífgun. 7. bekkur Bólusetningar. 8. bekkur Sjálfsmynd og samskipti, hugrekki og endurlífgun. 9. bekkur Kynheilbrigði og bólusetning. 10. bekkur Geðheilbrigði, endurlífgun og ábyrgð á eigin heilsu. Skimanir Skimað er fyrir ákveðnum heilbrigðisvandamálum í 1., 4., 7. og 9. bekk. Þær felast í mælingu á hæð, þyngd og sjónskerpu. Nemendur í öðrum árgöngum eru skimaðir eftir þörfum. Ef frávik reynist í skimun er haft samband við forsjáraðila. Heilsueflandi viðtöl um lífsvenjur og líðan Þegar skimanir fara fram í 1., 4., 7. og 9. bekk ræðir skólahjúkrunarfræðingur við nemendur um líðan og lífsvenjur. Markmið viðtalanna er að styrkja vitund nemenda um eigið heilbrigði og líðan. Ef vart verður við vanlíðan eða áhyggjur er gripið til úrræða. Bólusetningar Bólusetningum er ætlað að verja einstaklinginn gegn alvarlegum smitsjúkdómum. Í 7. bekk er bólusett við mislingum, hettusótt og rauðum hundum (1 sprauta) og HPV (Human papilloma veirum) sem geta valdið leghálskrabbameini. HPV-bólusetning er gefin tvisvar með 6 mánaða millibili. Í 9. bekk er bólusett við barnaveiki, stífkrampa, kíghósta og mænusótt (ein sprauta). Fyrir bólusetningu fá foreldrar tölvupóst með upplýsingum um tímasetningu. Það er á ábyrgð foreldra að láta bólusetja börn sín. Gott er að nemendur komi með bólusetningarskírteini sín í skólann þegar bólusetning fer fram. Hafið samband við skólahjúkrunarfræðing ef: talið er að barn sé ekki að fullu bólusett óskað er eftir því að barn sé ekki bólusett nánari upplýsinga er óskað Sjá meira um bólusetningar Veikindi og slys Ef óhapp eða slys verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæsluna eða slysadeild skulu foreldrar fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í þá á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af heilsuvernd skólabarna. Langveik börn Mikilvægt er að skólahjúkrunarfræðingur viti af börnum sem eru með fötlun eða langvinnan eða alvarlegan sjúkdóm, til dæmis sykursýki, ofnæmi, flogaveiki, blæðingarsjúkdóma eða aðra alvarlega sjúkdóma. Hlutverk skólahjúkrunarfræðingsins er að skapa þessum börnum viðeigandi aðstæður og umönnun í skólanum í samvinnu við foreldra og starfsfólk skólans. Lyfjagjafir Samkvæmt tilmælum landlæknis um lyfjagjafir í grunnskólum eru sérstakar vinnureglur varðandi lyfjagjafir til nemenda á skólatíma. Höfuðlús Höfuðlús birtist reglulega í skólum landsins og er mikilvægt að foreldrar kembi hár barna sinna reglulega yfir skólaárið. Rétt er að láta skólann vita ef lús finnst í hári barns og skólahjúkrunarfræðingur getur leiðbeint varðandi lúsasmit. Sérkennsla Deildarstjóri stoðþjónustu: Helga Helgadóttir Viðtalstímar eru eftir samkomulagi 527 7300 helgah@skardshlidarskoli.is Sérkennsla er sérstakur stuðningur fyrir nemendur með sértæka námserfiðleika, fötlun, lesblindu (dyslexíu) eða grun um lesblindu. Sérkennslan fer fram annað hvort inni í bekk eða litlum hópi utan bekkjar. Margir nemendur sem eru í sérkennslu vinna eftir bekkjarnámskrá og með námsefni bekkjar en aðrir vinna eftir einstaklingsmarkmiðum og þurfa aðlagað námsefni og námsaðstæður. Gerðar eru námsáætlanir fyrir hópa eða einstakling þar sem fram koma upplýsingar um stöðu nemenda, markmið kennslunnar, leiðir og mat. Sérkennslan er skipulögð til lengri eða skemmri tíma og þörf nemandans fyrir sérkennslu er reglulega endurmetin. Mikil áhersla er lögð á góða samvinnu milli heimila, umsjónarkennara og sérkennara. Íslenska sem annað tungumál Nemendur með íslensku sem annað tungumál fá sérstuðning í íslenskukennslu á meðan þess er þörf. Þeir geta fengið undanþágu frá skyldunámi í dönsku og fengið í staðinn aukinn stuðning í íslensku, öðrum námsgreinum eða fengið metið nám á eigin tungumáli. Kennslan getur farið fram með eða án stuðnings í almennum bekk, sérkennslu í litlum hópi eða einstaklingskennslu utan bekkjar í námsverinu Veröld. Sálfræðiþjónusta Skólasálfræðingur: Bergþóra Ragnarsdóttir Viðtalstímar eftir samkomulagi bergthorar@hafnarfjordur.is Sálfræðingur starfar í öllum grunnskólum bæjarins. Sálfræðingur skólans sinnir greiningu, fræðslu, stuðningi og ráðgjöf en ekki meðferð. Tilvísanir til sálfræðings berast í gegnum nemendaverndarráð eða brúarteymi grunnskólans. Samþykki foreldra verður alltaf að liggja fyrir. Tilefni beiðna geta verið margvísleg en áhersla er lögð á snemmtækt mat og greiningu á stöðu nemanda vegna náms, hegðunar og sálrænna erfiðleika. Talmeinaþjónusta Börn sem glíma við frávik í máli eða tali eiga rétt á greiningu talmeinafræðings ásamt sérkennslu og stuðningi við nám í grunnskóla. Talmeinafræðingur veitir einnig ráðgjöf til starfsfólks grunnskóla. Foreldrar geta óskað eftir greiningu og ráðgjöf talmeinafræðings, í öllum tilvikum þarf skriflegt samþykki foreldra að liggja fyrir áður en greining fer fram.