Skarðshlíðarskóli stóð í gærkvöldi fyrir vel sóttu fræðsluerindi fyrir foreldra um netnotkun barna og ungmenna. Fyrirlesarar voru Skúli Bragi Geirdal og Haukur Brynjarsson frá Netvís. Í erindinu var fjallað um meðal annars skjátíma barna, aldurstakmörk á samfélagsmiðlum, samskipti á netinu, áreitni og deilingu mynda. Foreldrar fengu hagnýt ráð, kynningu á verkfærakistu með stuðningsefni og leiðir til að vinna að gerð fjölskyldusáttmála. Fræðslan byggir á niðurstöðum rannsóknar Fjölmiðlanefndar í samstarfi við Menntavísindastofnun Háskóla Íslands og Maskínu. Fyrr um daginn höfðu nemendur í 5.–10. bekk fengið fræðslu þar sem markmiðið var að valdefla þau til að nýta tæknina á eigin forsendum á uppbyggilegan og jákvæðan hátt. Fræðsluerindið var blanda af fyrirlestri, hópaverkefnum og samtali við nemendur, með áherslu á vitundarvakningu, hugtakaskilning og sjálfstyrkingu. Deila Tísta