Í vetur hafa nemendur unnið áhugasviðsverkefni sem við köllum snillistund. Nemendur velja sér viðfangsefni eftir áhugasviði, leita af heimildum og dýpka þekkingu sína þar til þeir verða sérfræðingar. Nemendur skiluðu nýlega verkefnunum af sér á sýningu sem var haldin fyrir foreldra og forráðamenn. Verkefnin voru jafn fjölbreytt og þau voru mörg og gaman að sjá afraksturinn. Deila Tísta