Skólaráð

Skólinn

Samráðsvettvangur um skólahald

Skólaráð grunnskóla er samstarfsvettvangur starfsfólks skóla, nemenda, foreldra og grenndarsamfélags. Ráðið er kosið til tveggja ára í senn.

Skólastjóri boðar til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári og sendir út fundaáætlun skólaársins. Hann boðar til funda, sendir drög að umræðuefnum og stýrir fundum. Aðstoðarskólastjóri ritar fundargerð og sér til þess að þær birtist á vef skólans.

Helstu verkefni skólaráðs

  • Umfjallanir um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið.
  • Umsagnir um áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skólans áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin.
  • Að fylgjast með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda.

Skólaráð Skarðshlíðarskóla 2024–2025

Hlutverk Netfang
Ingibjörg Magnúsdóttir Skólastjóri ingibjorg@skardshlidarskoli.is
Arngunnur Hafstað Aðstoðarskólastjóri
Ásgeir Rafn Birgisson Fulltrúi kennara
Hólmfríður Þórisdóttir Fulltrúi kennara
Jóhanna Inga Hjartardóttir Fulltrúi starfsfólks
Sandra Gunnarsdóttir Fulltrúi foreldra
Rakel Ósk Sigurðardóttir Fulltrúi foreldra
Alexandra Eir Andrésdóttir Fulltrúi foreldra
Katrín Rós Arnórsdóttir Fulltrúi nemenda
Elvar Berg Helgason Fulltrúi nemenda
Fjóla Sigrún SIgurðardóttir Fulltrúi tómstundarmiðstöðvar

Fundagerðir

Veturinn 2024 - 2025