Það er nóg um að vera í tónmennt. Nemendur syngja í míkrafóna, spila á hljóðfæri og hafa hinar ýmsu hljómsveitir verið stofnaðar. Það er gaman að sjá nemendur prófa sig áfram og uppgötva hæfileika sína. Allir geta spilað og sungið saman og þó nokkur tónverk hafa litið dagsins ljós. Við eigum fullt af litlu tónlistarfólki í skólanum og það er mjög mikilvægt að leyfa þeim að blómstra. Deila Tísta