Í Skarðshlíðarskóla var haldin hrósvika 23.-27. febrúar. Markmið átaksins var að gera góðan skólabrag enn betri og koma auga á æskilega hegðun og styrkja hana í sessi með hrósi. Nemendur fengu að heyra um mikilvægi þess að hrósa og taka á móti hrósi með þakklæti. Titill verkefnisins var „Hrós getur gert kraftaverk“. Nemendur og starfsfólk voru hvött til að hrósa hvert öðru og fylltist veggur á kaffistofu starfsfólks af hvetjandi hrósum. Margir árgangar unnu einnig skemmtileg verkefni tengt hrósi. Nemendur í 3. bekk útbjuggu til að mynda sendibréf með fallegri kveðju (hrósi) sem hópurinn bar út í hverfið okkar. Hrós-vikan gekk vel og almenn ánægja ríkti með þetta uppbyggilega átak. SMT-teymi Skarðshlíðarskóla. Deila Tísta