Foreldrasamstarf

Foreldrar

Í Skarðshlíðarskóla er lögð áhersla á traust samstarf milli foreldra og skólans. Stefnt er að því að foreldrar og forsjáraðilar séu virkir þátttakendur í námi barna og vel upplýstir um starfsemi skólans.

Velferð barna og farsæl námsframvinda byggist að hluta á því að foreldrar styðji við skólagöngu barna sinna, eigi gott samstarf við skóla, veiti skólanum viðeigandi upplýsingar og taki þátt í námi barna sinna og foreldrastarfi frá upphafi til loka grunnskóla.

Upplýsingagjöf milli heimila og skóla og samráð kennara og foreldra um nám og kennslu er mikilvæg forsenda fyrir árangursríku skólastarfi. Skólar bera ábyrgð á að slíkt samstarf ríki alla skólagöngu barnsins.

Samstarf foreldra og skóla

  • Regluleg foreldraviðtöl og kynningarfundir.
  • Kennarar og aðrir starfsmenn eru með viðtalstíma fyrir foreldra.
  • Reglulegir fundir skólastjórnar og foreldraráðs.
  • Í skólanum er starfandi virkt foreldrafélag og vænst er virkrar þátttöku foreldra í skólastarfinu.
  • Fulltrúar foreldra, oftast úr foreldrafélagi, eru fulltrúar í skólaráði.
  • Foreldrar eiga kost á að koma inn í skólann og fylgjast með almennri starfsemi og bekkjarkennslu í samráði við kennara.
  • Allar mikilvægar upplýsingar eru aðgengilegar á vefsíðu skólans og auðvelt er að finna þær.
  • Reglubundnar viðhorfskannanir meðal foreldra um skólastarfið og upplýsingar um niðurstöðu þeirra.

Farsældarsáttmálinn - samstarfsverkefni heimilis og skóla

Í vetur bauð skólinn foreldrum úr öllum árgöngum skólans á fundi sem hófust á fræðslu sem bar heitið „Samvinna og samskipti, lykill að vellíðan barna“. Eftir fræðsluna fóru foreldrar ásamt stjórnendum og umsjónarkennurum í minni hópa þar sem unnin var farsældarsáttmáli fyrir hvern árgang.

Farsældarsáttmálinn er verkfæri sem byggir á því að foreldrar komi sér saman um ákveðin viðmið eða gildi sem þeir telja mikilvæg til þess að styðja við vöxt og þroska allra barna í nærsamfélaginu. Farsældarsáttmálinn gefur foreldrum tækifæri til þess að forma samstarf sín í milli, styrkja foreldrastarfið og hlutverk foreldra sem lykilaðila í að skapa farsælt samfélag. Hér fyrir neðan eru sáttmálar fyrir hvern árgang.

Farsældarsáttmáli 1.b 2025

Farsældarsáttmáli 2.b 2025

Farsældarsáttmáli 3.b 2025

Farsældarsáttmáli 4.b 2025

Farsældarsáttmáli 5.b_2025

Farsældarsáttmáli 6.b_2025

Farsældarsáttmáli 7.b_2025

Farsældarsáttmáli 10.b 2025