Foreldrafélag

Foreldrar

Hlutverk foreldrafélagsins er að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla. Allir forsjáraðilar nemenda í skólanum teljast félagar í foreldrafélaginu.

Markmið foreldrafélagsins

Markmið félagsins er að vinna að heill og hamingju nemenda skólans og styrkja skólann í hvívetna, efla samvinnu heimila og skóla og koma á framfæri sjónarmiðum varðandi skóla, menntun og uppeldismál barna.

Markmiði sínu ætlar félagið að ná með því að:

  • Starfa samkvæmt ákvæðum laga og reglugerða sem Alþingi og Mennta- og barnamálaráðuneyti setur um grunnskóla.
  • Skipuleggja og þróa leiðir til að efla samstarf heimila og skóla og styðja eftir megni félags- og tómstundastarf nemenda.
  • Veita skólanum aðstoð vegna ákveðinna verkefna og starfa í skólanum.
  • Koma á umræðufundum um skóla og uppeldismál almennt í samráði við skólann.
  • Fylgjast með skólastarfinu og koma fram með óskir um breytingar á starfi skólans.
  • Fjalla um og koma með tillögur um aðstöðu barna í skólahverfinu.
  • Vera samstarfsvettvangur foreldra.

Stjórn Foreldrafélags Skarðshlíðarskóla

Stjórn foreldrafélagsins er skipuð að minnsta kosti einum forsjáraðila úr hverjum árgangi og fulltrúum sérdeilda skólans. Stjórnin er kosin á aðalfundi félagsins sem er haldinn í byrjun skólaársins. Stjórn foreldrafélagsins stendur fyrir viðburðum á skólaárinu og styður við bekkjartengla. Skólastjóri fundar með stjórn foreldrafélagsins eins oft og þurfa þykir.

 

Skólaráð

Tveir fulltrúar foreldra eru kosnir í skólaráð. Æskilegt er að annar þeirra sé einnig í stjórn foreldrafélagsins. Stjórn foreldrafélagsins, í samráði við skólastjóra, auglýsir eftir tilnefningum úr hópi foreldra í skólaráð, í síðasta lagi viku fyrir aðalfund foreldrafélagsins. Tilnefningum skal skilað til formanns foreldrafélagsins eða senda í tölvupósti á netfang foreldrafélagsins. Ef enginn gefur kost á sér þá leitar stjórn foreldrafélagsins eftir foreldrum til að gefa kost á sér.

Stjórn 2023–2024

Nafn Hlutverk
Bjarney Jóhannsdóttir Formaður
Kristín Dögg Kristinsdóttir Varaformaður
Harpa Hrund Albertsdóttir Gjaldkeri
Alexandra Eir Andrésdóttir Ritari
Birna Margrét Guðmundsdóttir Meðstjórnandi
Sandra Lóa Gunnarsdóttir Meðstjórnandi

1. grein

Félagið heitir Foreldrafélag Skarðshlíðarskóla, heimili þess er Kirkjuvellir 1, Hafnarfirði.

2. grein

Félagar eru foreldrar og forsjáraðilar nemenda í skólanum.

3. grein

Markmið félagsins er að vinna að heill og hamingju nemenda skólans og styrkja skólann í hvívetna, efla samvinnu heimila og skóla og koma á framfæri sjónarmiðum varðandi skóla, menntun og uppeldismál barna.

Markmiði sínu ætlar félagið að ná með því að:

  • Starfa samkvæmt þeim ákvæðum laga og reglugerða sem Alþingi og Mennta- og barnamálaráðuneyti setur um grunnskóla.
  • Skipuleggja og þróa leiðir til að efla samstarf heimila og skóla og styðja eftir megni félags- og tómstundastarf nemenda.
  • Veita skólanum aðstoð vegna ákveðinna verkefna og starfa í skólanum.
  • Koma á umræðufundum um skóla og uppeldismál almennt í samráði við skólann.
  • Fylgjast með skólastarfinu og koma fram með óskir um breytingar á starfi skólans.
  • Fjalla um og koma með tillögur um aðstöðu barna í skólahverfinu.
  • Vera samstarfsvettvangur foreldra.

Félagið eða stjórn þess skal ekki hafa afskipti af vandamálum sem upp kunna að koma milli einstakra foreldra eða forsjáraðila og starfsfólks skólans.

4. grein

Stjórn félagsins er kosin á aðalfundi og skal skipuð foreldrum eða forsjáraðilum, að minnsta kosti einum fyrir hvern árgang nemenda og fulltrúum sérdeilda skólans. Stjórnin kýs formann úr sínum hópi, skiptir með sér verkum og setur sér starfsreglur. Stjórn félagsins skal halda að minnsta kosti 4 fundi árlega. Öll stjórnin skal kosin til eins árs í senn og skal hún koma sér saman um að að minnsta kosti 1/3 hluti hennar sitji áfram í stjórn næsta starfsár, þannig að ekki verði meira en 2/3 hlutar hennar kosnir árlega. Rétt til setu á stjórnarfundum hafa skólastjóri, aðstoðarskólastjóri og árgangastjórar, og hafa þeir málfrelsi og tillögurétt.

5. grein

Fulltrúi hvers árgangs í stjórn er ábyrgur fyrir því að 2 bekkjarfulltrúar séu skipaðir fyrir hvern bekk í árganginum. Bekkjarfulltrúar sjá um starf í þágu síns bekkjar samkvæmt starfsreglum stjórnar. Stjórn foreldrafélagsins skal boða alla bekkjarfulltrúa til sameiginlegs fundar minnst einu sinni á vetri.

6. grein

Aðalfund skal halda fyrir lok maí ár hvert og telst fundurinn löglegur ef til hans er boðað með minnst 7 daga fyrirvara. Á aðalfundi flytur stjórnin skýrslu um störf félagsins á liðnu starfsári. Aðalfundur ákveður upphæð árgjalds, það innheimtist hjá félagsmönnum og skal það innheimt fyrir næsta aðalfund félagsins. Fyrir skólaárið 2017–2018 var það 2.500 krónur.

7. grein

Á aðalfundi félagsins skal kjósa 2 fulltrúa í skólaráð skólans eins og kveðið er á um í 9. gr. laga nr. 91/2008. Kosning í skólaráð fer eftir eftirfarandi starfsreglum.

  • Stjórn foreldrafélagsins í samráði við skólastjóra auglýsir eftir tilnefningum úr hópi foreldra í skólaráð. Tryggja skal að öllum foreldrum berist slík auglýsing. Auglýsinguna skal senda með Námfús pósti á alla foreldra og birta á heimasíðu skólans og foreldrafélagsins. Í auglýsingunni er hlutverk skólaráðs kynnt og að fulltrúar séu kosnir til tveggja ára í senn. Tilnefningum skal skilað til formanns foreldrafélagsins eða senda í tölvupósti á netfang foreldrafélagsins.
  • Annar fulltrúi foreldra í skólaráði skal vera úr röðum stjórnarmanna foreldrafélagsins.
  • Ef enginn gefur kost á sér þá leitar stjórn foreldrafélagsins eftir foreldrum til að gefa kost á sér. Auglýsa skal eftir framboði foreldra í skólaráð í síðasta lagi viku fyrir aðalfund foreldrafélagsins.
  • Allir foreldrar barna í Skarðshlíðarskóla eru kjörgengir nema þeir séu kennarar eða starfsfólk skólans eða sitji sem kjörnir fulltrúar í fræðslunefnd Hafnarfjarðar.
  • Kosið er í skólaráð á aðalfundi foreldrafélagsins.
  • Þegar kosið er í fyrsta sinn í skólaráðið er annar fulltrúi foreldra kosinn til eins árs og hinn til tveggja ára. Varamenn skal kjósa í samræmi við það. Með þessu móti er komið í veg fyrir að báðir fulltrúar foreldra fari úr skólaráðinu á sama tíma.
  • Að öllu jöfnu skal miða við að fulltrúi foreldra sitji ekki lengur en 4 ár samfellt í skólaráði

8. grein

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og ræður meirihluti atkvæða fundarmanna. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórninni 5 dögum fyrir aðalfund.

9. grein

Ákvörðun um slit félagsins verður tekin á aðalfundi, með auknum meirihluta og renna eignir þess til Skarðshlíðarskóla.

10. grein

Lög þessi öðlast þegar gildi.