Hlutverk bekkjarfulltrúa er að stuðla að auknu samstarfi foreldra, kennara og nemenda innan hvers bekkjar, meðal annars með því að halda viðburði fyrir bekkinn eða árganginn utan skólatíma. Bekkjarfulltrúar Á vorin eru 2 bekkjarfulltrúar í hverjum bekk skipaðir fyrir komandi skólaár og geta því byrjað næsta skólaár á kynningu til foreldra og fá hugmyndir af viðburðum. Foreldrafélagið er með kynningarfund á haustin um bekkjafulltrúastarfið og boðar alla bekkjarfulltrúa til sameiginlegs fundar, minnst einu sinni á vetri. Lykla af skólanum vegna bekkjarviðburða er hægt að nálgast skrifstofu skólans.