Lestrarátakinu fluglæsi á ferð um heiminn lauk í síðustu viku. Lestrarátakið stóð yfir í tvær vikur og ferðuðust árgangar í flugvélum á milli landa. Allir luku við að ferðast til þeirra landa sem átakið náði til. Þegar árgangurinn hafði náð ákveðnum mínútufjölda mátti flugvélin hefja sig á loft til næsta lands. Í lokin fengu bekkir viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna. Til gamans þurfti 1. bekkur að ná 650 lesnum mínútum til að ferðast til annars lands en 10. bekkur 1000 mínútur . Við þökkum nemendum fyrir frábæra þátttöku og áhuga. Deila Tísta