Boðið verður upp á viðbótaropnun á skólabókasafni Skarðshlíðarskóla milli kl. 16 og 18 á þriðjudögum í mars, fram að páskafríi. Foreldrar, forráðamenn og aðrir aðstandendur eru velkomin á safnið með nemendum til að eiga notalega stund og velja bækur. Markmiðið er að efla lestrarmenningu og hjálpa börnum og foreldrum að velja bækur sem hæfa áhuga, styrkleika og hæfni barnanna. Hlökkum til að sjá ykkur! Deila Tísta