Menntamálastofnun hefur gefið út nýtt námsefni fyrir kennslu íslensku sem annað tungumáls. Námsefnið er vefur sem ber nafnið Orðatorg og er byggt á myndaorðabókinni Orð eru ævintýri. Námsefnið er á átta tungumálum auk íslensku.

Á vefnum má meðal annars finna:
- Rafbókarútgáfu Orð eru ævintýri sem er myndabók sem hægt er nota til að efla orðaforða.
- Hugmyndabanka fyrir bæði leik og grunnskóla með leiðum til að vinna með bókina Orð eru ævintýri.
- Tungumálavef þar sem orðin úr bókinni Orð eru ævintýri eru þýdd á átta tungumál og lesin upp á íslensku.
- Gagnvirka orðaleiki til að æfa notkun tungumálsins.
Væntanlegt er vandað spil sem inniheldur mynda- og orðaspjöld með efni bókarinnar.
Hér er vefslóðin: https://vefir.mms/ordatorg/